245.is  

 

   

Forsíða

    

Eldri fréttir

    

Viðtöl og greinar

    

Þankabrot

    

Nýir Sandgerðingar

    

Aðsent efni 

    

Myndasafn 

    

Smáauglýsingar 

    

Sandgerðisdagar 

    

Um vefinn

    

Auglýsingaverð

    

Hafa samband

   

Leitarvél














 



 

 Þjónusta í Sandgerði  

   

Afþreying

   

Bankar

    

Bensínstöðvar

    

Bílaviðgerðir 

    

Dagvöruverslun

    

Ferðir/Flutningar

    

Félög

    

Gisting

   

Gjafavörur

    

Heilsa og útlit

    

Kirkjustarf

   

Menning og listir

    

Opinber þjónusta

    

Sjávarútvegur

    

Skólar

    

Söfn/Sýningar

    

Tölvur og Internet

    

Veitingahús/Salir

    

Vélsmiðja

    

Verktakastarfsemi


 Fréttir

Þú ert hér > Forsíða > Fréttir

9.3.2010 16:45:39
Mótmæli varðandi byggingu iðnaðarhúsnæðis í Suðurreit og á hafnarsvæði
Opið bréf til bæjaryfirvalda í Sandgerði

Samkvæmt deiliskipulagi á að byggja iðnaðarskemmur í Suðurreit. Þessar skemmur munu hafa það í för með sér að útsýni til sjávar mun skerðast algjörlega frá hluta Miðtúns og Norðurtúns.

Þessar fyrirhuguðu byggingaframkvæmdir ásamt vegaframkvæmdum á einum fallegasta stað í Sandgerði; móunum fyrir neðan Miðtún og Norðurtún, á að fórna undir skemmur. Sorglegt skilningarleysi bæjaryfirvalda varðandi þetta griðland fólks og fjölbreytts fuglalífs á að fylla upp með möl og grjóti allt að 5 metrum undir grunnplötu “til að uppfylla skilyrði Siglingamálastofnunar varðandi flóðahættu” og byggja þarna skemmur.

Já, landsvæði undir skemmur er semsagt af skornum skammti í Sandgerði. Vaðið er yfir íbúa á skítugum skónum þegar að skipulagsmálum kemur. Undirskriftarlistar, mótmælabréf og kærur hafa litla meiningu þegar að skipulagsmálum kemur. Benda má á þá gríðarlegu þungaflutninga sem eiga sér stað í dag og fara vaxandi til að sjá fyrirtækjum við Strandgötu og Hafnargötu fyrir hráefni. Þessir þungaflutningar eru mikið áhyggjuefni fyrir íbúa Sandgerðis. Bæjarfélag sem gerir sig út á fjölskylduvænt umhverfi og hefur eytt í það stórum fjárhæðum verður að taka þetta til greina, annað er hræsni af verstu gerð. Ef af þessum framkvæmdum í Suðurreit og hafnarsvæði verður, munu þungaflutningar inn í hjarta bæjarins stóraukast. Ekki getur það talist fjölskylduvænt umhverfi. Leyfi ég mér hér með að mótmæla aukinni iðnaðarstarfsemi í hjarta bæjarins með stóraukinni umferð þungaflutninga.

Bæjaryfirvöld hafa haldið umhverfismálum hátt á lofti og skafið þar hvergi af. Sorglegt ástand umhverfismála í og við aðalgötu bæjarins er Sandgerðingum og bæjaryfirvöldum til stór skammar. Ruslahaugar, gömul bílhræ, ryðgaðir gámar og annað aflóga drasl flýtur þar um allt. Þrátt fyrir loforð bæjarstjórnar að gera gangskör í þessum málum hefur ástandið bara versnað. Aukin uppbygging á iðnaðarhúsnæði á þessu svæði býður bara upp á meira rusl sem aldrei virðist ætla að hverfa. Til að bæta gráu ofan á svart á að fórna fallegasta svæði Sandgerðis undir meira rusl. Ég segi NEI. Verndum móann í Suðurreit og gerum þar fallegt samkomusvæði í hjarta bæjarins þar sem fólk getur komið saman á tyllidögum, þjóðhátíðardegi og Sandgerðisdögum í fallegu umhverfi með óskert útsýni yfir hafið. Þó að margt gott hafi verið gert til að fegra bæinn síðustu árin verður að gera betur ef duga skal. Sandgerði má ekki breytast aftur í Drasl-gerði. Ruslahaugar og opin holræsi heyra sögunni til. Skora ég á bæjaryfirvöld að horfa til framtíðar og fórna ekki þeim möguleika að byggja upp fallegt útivistarsvæði í Suðurreit. Iðnaðarsvæði á að byggja fyrir utan bæjarkjarnann og minnka þannig umferð og mengun sem af þessari starfsemi hlýst bæjarbúum til ama.

Í komandi kosningum til bæjar- og sveitarstjórna munu umhverfismál verða sett á oddinn. Sá frambjóðandi sem setur verndun Suðurreits á stefnuskrá sína mun hljóta lof og virðingu bæjarbúa. Bæjarfélagið verður að gera gangskör í að hreinsa rusl í- og við aðalgötu bæjarins, þessum ósóma verður að linna, það hlýtur að vera krafa bæjarbúa. Suðurreit má ekki fórna undir skemmur.

Sandgerði 9. mars 2010

Sigurjón Gunnarsson
Norðurtúni 6
Sandgerði



Prentvæn útgáfa

   
    Til baka